Nemendagarðar
Nemendagarðar Háskólans á Hólum
Nemendagarðar Háskólans á Hólum eru staðsettir í Hjaltadal í Skagafirði. Húsnæði á nemendagörðum stendur nemendum til boða sem stunda nám við Háskólann á Hólum. Aðrir aðilar geta sótt um húsnæði eftir að úthlutun til nemenda hefur farið fram.
Húsnæði Nemendagarða
Nemendagarðar eiga húsnæði í Nátthaga 19 – 21, Geitagerði 2, 4, 5, 6, 9 og 11.
Nemendagarðar bjóða upp á leigu á herbergi í Nátthaga þar sem fjórir einstaklingar búa saman. Herberginu fylgir aðgangur að sameigninlegu rými sem telur til stofu, eldhús og baðherbergis. Baðherbergi eru með sturtu og þvottavél.
Þá er einnig boðið upp á 2ja herbergja/einstaklingsíbúð, 3ja herbergja íbúð og 4ra herbergja fjölskyldu íbúðir á nemendagörðum. Hægt er að óska eftir íbúð ýmist með eða án húsgagna.
Húsnæði með húsgögnum:
- Geitagerði 5
- Geitagerði 9
- Nátthagi 19
- Nátthagi 20 jarðhæð
Húsnæði án húsgagna:
- Geitagerði 4
- Geitagerði 6
- Geitagerði 11
- Nátthagi 20 2. hæð og 3. hæð
- Nátthagi 21
Lista yfir húsgögn íbúða má finna hér
Þjónusta á svæðinu
Alla helstu þjónustu er að finna í Skagafirði, ca. 25 mínútur tekur að keyra inn á Sauðárkrók og ca. 20 mínútur tekur að keyra á Hofsós.
Sauðárkrókur bíður upp á ýmsa þjónustu, s.s. matvöruverslanir, heilbrigðisþjónustu, íþróttahús, sundlaug og ýmislegt fleira. Hér er að finna hlekk á upplýsingar Skagafjarðar: https://www.skagafjordur.is/
Á Hofsós er að finna sundlaug, matvöruverslun og fleira.
Sorpmál
Í skagafirði þarf að flokka allt sorp og mikilvægt að kynna sér vel reglur sveitarfélagsins í þeim efnum. Sjá nánar á: https://www.skagafjordur.is/is/thjonusta/umhverfis-og-skipulagsmal/hreinlaetismal-og-sorpflokkun